Life is like a box of chocolate....
- Myndir -
25.02.2009 22:23:51 / edg

Upphandleggurinn aumur...


...þar sem ég fékk sprautu í dag. Hata sprautur, en það sem maður leggur ekki á sig fyrir smá ferðalag:$. Styttist óðum í Kína og því var við hæfi að klára þessar stífkrampa/barnaveiki/lifrabólguA sprautur af sem fyrst og voila, bara afgreitt á núll og einni + ég ennþá sprelllifandi:haha:.

Ég er búin að sjá það að ég er haldin nokkurskonar valkvíða – og þá meina ég bara yfir höfuð. Getur tekið mig alveg óratíma að velja á milli og/eða taka litlar ákvarðanir (úff hvernig verður það þegar þær verða stærri:$). Átti í svona erfiðleikum í kvöld. Til að gera langa sögu stutta, þá vinnur meðleigjandinn minn hjá voðalega skemmtilegu fyrirtæki og á kauði það til að fá boðsmiða hingað og þangað. Hann var semsagt með boðsmiða á pre-premier í Nørrebro Teater á stykki sem heitir 2200 Carmen (sjá hér). Til að gera söguna enn styttri þá var það smávegis heimanám fyrir morgundaginn sem var að gera mér lífið leitt, hinsvegar hef ég verið mjög ómenningarleg hér í borg og langaði að bæta úr því – og eftir nokkur msn samtöl, símtöl og vangaveltur ákvað ég að slá til.  
Jómfrúarferðin mín í danskt leikhús var vel þess virði, sagan, leikararnir, dansararnir, sviðsmyndin og svo mætti lengi telja var allt saman alveg frábært:!:. Ekki skemmdi það svo fyrir að þessi gaur hér sá um að syngja fyrir mig allan tímann;).

Annars er bara allt við það sama hér, nóg að gera, át yfir mig á síðustu helgi og fékk magapínu í kjölfarið og jú, svo hafa strætóbílstjórar verið að verkfallast núna í vikunni sem er að líða. Asnalegt að sjá ekki strætóa á götunum hérna....


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2009 13:12:36 / edg

Kveðja frá the Black Diamond ...


Sit hérna á Det Kongelige Bibliotek og reyni að vinna mér í haginn. Voðalega notalegt að vera hér, rosa gamaldags, fullt af plássi, bókum, internettenginu og innstungum (sem klárlega mætti gera bætur á í CBS).

Það er vetur í Kaupmannahöfn. Ég hélt hreinlega að það ætlaði aldrei að hætta að snjóa hér í gær og í fyrradag – kuldinn er líka eftir því. Reyndar virðist þetta ekki vera neitt sem að festist þannig, en samt er svona hvít skikkja yfir öllu, Søene gjörsamlega frosin + nóg af slabbi (sem mér finnst alveg einstaklega leiðinlegt). Ég get hreinlega ekki beðið eftir vorinu......

Annars er sveitaball hér í kvöld uppi á Amager. Á Móti Sól er víst mætt á svæðið og ætlar að slá á létta strengi sem og einhverjir voða færir DJ‘ar. Var á mörkunum að nenna en sló svo til – hef aldrei farið á svona Íslendingahitting hér í borg þannig að það er um að gera að prófa. Restin af helginni er svo planlögð út í eitt. Svíþjóð á morgun þar sem fröken Andrea Elín heldur upp á 2 ára afmælið sitt. Það er svo spurning um að framlengja þar fram á sunnudag og kíkja á sænskt skemmtanalíf, eða drífa sig heim, smella sér í búning og fara í Fastelavn partý til Bornholmsdrengjanna. Á sunnudaginn er svo bolludagskaffi hjá skvísunum á RBG........

.....og já ég semsagt er að vinna mér í haginn hér í demantnum þar sem ég efast um að ég hafi tíma til að lesa fyrir þriðjudagstímann um helgina – off I go....





» 5 hafa sagt sína skoðun

10.02.2009 21:28:46 / edg

Ég var einu sinni A manneskja ...


....en er gjörsamlega B í dag8|. Vildi oft óska þess að geta bara tekið daginn snemma, það er þegar ég þarf ekki að mæta í skólann, vakna upp úr 8 á morgnana og lesa til kannski svona 16 á daginn. Eiga svo kvöldin frí án þess að vera með samviskubit. Það versta er að einbeitningin mín er svo miklu betri á kvöldin – og þá einna helst eftir klukkan 22 .....  + að ég get einfaldlega ekki komið mér í rúmið fyrir miðnætti ... bömmer:$.

Það gengur illa að halda þessari síðu lifandi – hinsvegar virðast flest allir aðrir vera í blogg-verkfalli einsog er og margar síðurnar ekki enn komnar í gang eftir jólafrí. Sjálfri finnst mér þetta miður (og þá meina ég hvað ég sjálf er löt) því að það er gaman, eftir öll þessi skrif um allt og ekkert, að geta átt nokkurskonar dagbók. Hinsvegar er ég að falla í þá djúpu gryfju (og á sama tíma skjóta mig ærlega í fótinn) því að jú þetta er orðið nokkurnveginn þess lags síða = dagbókarskrif (það sem ég hef verið að úthúða hérna oft áður:$). Ef til vill er það eitthvað skiljanlegra þar sem maður býr víst erlendis en ekki á klakanum einsog er.

Hef stundum verið að velta fyrir mér teljaranum hérna á þessari síðu. Yfirleitt dettur hann í vel yfir 100, jafnvel 200, en hinsvegar stendur alltaf kommentað kerfið mitt gjörsamlega autt og ónotað eftir hverja og eina færslu (og þá meina ég miðað við fjöldan sem virðist kíkir hingað inn). Kannski er teljarinn hérna eitthvað brenglaður – en ef ekki, you got the hint:!:. Bara gaman að fá eitt krúttulegt hæ ...

Annars er bara skítakuldi hérna Köben og svona var útsýnið úr stofuglugganum um daginn ....





» 6 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  67  Alls: 231956
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan