Life is like a box of chocolate....
- Myndir -
29.11.2008 14:27:51 / edg

Laugardagur til rigningar ...


...og það rignir látlaust hérna8|. Kannski ekki svo slæmt þar sem maður þarf að halda sig innandyra og reyna að undirbúa sig fyrir blessuð prófin sem nálgast óðum.

Þrátt fyrir það skellti ég mér í brunch til strákanna í morgun og var það indælt einsog svo oft áður. Ég hef hingað til verið svokölluð súkkulaðibolla og hef bara mætt með sjálfa mig en núna langar mig að taka þátt í hlaðborðinu – svo endilega ef einhver hefur skemmtilegar og auðveldar hugmyndir í pokahorninu hvað maður getur tekið með sér þá má sá hinn sami skilja þær eftir í kommentakerfinu:haha:;).

Fyrir utan skemmtilegan félagskap þessa laugardagsmorgna/hádegi þá er líka voða skemmtileg tónlist yfirleitt spiluð og þá erum við að tala um allan skalann, eldgamalt til dagsins í dag.  
Í dag finnst mér Veronica Maggio voða skemmtileg en hún er sænsk söngkona sem ég kynntist í gegnum playlistann hjá Bornholms-drengjunum. Skondið að vera farin að fíla svona Norðurlandatónlist - finnst að minnsta kosti þetta lag æði:

 

Fyrir utan lærdómslesningu (vonandi) þá er bæði danskt 30tugs afmæli í boði í kvöld sem og Julepartý hjá skvísunum á RBG 34. Maður verður víst að vinna fyrir því að fá að fara út – þannig að here I go....

Later ...



» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 12:40:25 / edg

Snjór og hygge....


Þegar ég skrifaði síðast hérna inn var ég á byrjunarpunkti í ritgerðarskrifum. Síðan þá hafa þó nokkur stressköst verið tekin í bland við smá panik, svartsýnisköst og vökunætur – alveg ótrúlegt hvernig þetta ferli getur virkað8|. Til að gera langa sögu stutta þá náði stelpan að klára þetta blessaða verkefni sem gildir hvorki meira né minna en 100% - og voru 5 síðustu dagarnir nýttir út í eitt. Vangavelturnar snéru að þessu sinni um mismunandi samningartækni á milli Kínverja og Vestrænna þjóða – mjög áhugavert en frekar breitt efni fyrir ekki lengri ritgerð sem mátti að hámarki enda í 10 blaðsíðum = hausverkur.  Nóg um það ...

Á skiladegi var svo búið að plana smá partý um kvöldið sem endaði með bögglaberafari heim um miðja nótt. Var rosalega nice þar sem götur Kaupmannahafnar voru nánast tómar, ég sitjandi einsog prinsessa með fæturnar samsíða á annarri hliðinni og svo ekki sé minnst á stjörnubjartann himininn. Tók líka bara 5 mínútur að komast heim og ég nokkrum krónum ríkari:!:. Miklu skemmtilegra að fá svona far með Hollendingi heldur en að setjast upp í leigubíl...

Annars hafa síðustu dagar farið í huggulegheit og að styrkja danskt efnahagslíf um nokkrar krónur. Óðinn, Beta og Jóhann Emil komu við hérna áður en þau tvö síðarnefndu snéru aftur á klakann eftir góðan tíma í Barcelona.  Þá voru teknir góðir göngutúrar í kuldanum, fengið sér kakó á kaffihúsum, kíkt í jólatívolíið og góður matur eldaður – svo var jú jólaglögg og öl smakkað;).

Ég er líka búin að fá aðgang inn í skemmtilega hefð (ef svo má kalla) hérna þar sem danskur skólabróðir minn + meðleigjandinn hans hafa boðið mér nokkrum sinnum í brunch á laugardögum. Þessir brunch-ar eru haldnir heima hjá þeim alla laugardaga og er yfirleitt mismunandi fólk sem mætir og kemur þá hver og einn með eitthvað á borðið. Ég er víst núna komin með „valid-passa“ og má því mæta þegar ég vil - þarf því ekki að bíða eftir boðskorti:haha:. Á örugglega eftir að vera tíður gestur þar sem þetta er þrælskemmtilegt, alltaf gaman að hitta fleira fólk + það sem maður hefur hitt áður. Þar sem þetta eru svo meira og minna allt Danir þá ætti maður nú eitthvað að geta æft sig í tungumálinu... – nú eða að minnsta kosti í skilningi og hlustun:haha:.

Í lokin það er kalt en fallegt í Köben þessa dagana ....







» 8 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 15:58:00 / edg

Kveðja frá Dalgas Have ...


...ákvað að prófa hitt bókasafnið eftir tíma í dag – bara svona til að skipta um umhverfi:haha:.

Það er frekar notalegt veður úti, smá blautt en samt ekki kalt og það er voðalega þæginlegt að taka smá göngutúr í svona veðri – þar að leiðandi setti ég það ekki fyrir mig að þurfa að rölta hingað (akkúrat í öfuga átt við þar sem ég bý) til þess að nálgast eina bók eða svo.

Tíminn flýgur áfram svo ekki sé meira sagt. Finnst einsog ég hafi verið að koma frá Íslandi í gær en samt eru nánast 2 vikur síðan.  Fyrsti tíminn í Financial Markets var ekki svo slæmur þrátt fyrir fyrrnefndar glærur – reyndar hefur Ísland nánast verið tekið sem dæmi í hverjum tíma síðan þá þannig að vonandi á það, að vera Íslendingur, eitthvað eftir að gagnast manni í komandi lokaprófi (og þá meina ég  þar sem maður er búinn að vera rýnandi í og á Mbl, M5 og Vísi daginn út og inn síðustu mánuði til þess að skilja hvað sé í gangi).  Sjáum nú til með það:$ ...

Síðustu tvær vikur hafa innihaldið þó nokkra gleði, gestagang og annað skemmtilegt. Fyrst heiðraði Daddi frændi mig með nærveru sinni, þar á eftir fylgdu Begga, Pétur & Eva Lillý í kjölfarið og svo tók hún Aldís sys við – en hún skellti tilbaka á klakann í dag.

Núna er það svo orðið svo að maður er spurður í strætó hvort maður komi frá Reykjavík og svo í kjölfarið kemur runan um hvað sé eiginlega að gerast þarna uppfrá:!:. Annars er fólk enn mjög ljúft og ef eitthvað er þá bjóða Danirnir manni bara oftar upp á bjór ...

Annars er annasamur tími framundan í skólanum og núna rétt í þessu – mér til mikillar gleði og yndisauka – var ég að frétta að leigan mín hefði ekki skilað sér inn á viðeigandi reikning þó svo að búið sé að skuldfæra minn reikning fyrir löngu...

I just love the Central Bank:!:..


» 9 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  108  Alls: 230970
Dagsetning
15. mars 2010
Klukkan