Life is like a box of chocolate....
- Myndir -
26.10.2009 17:36:43 / edg

...


Einhverntíman las ég í stjörnuspánni minni að það væri rosalega sniðugt fyrir fólk í meyjumerkinu að stunda yoga. Ekki það að ég trúi statt og stöðugt því sem kemur fram í slíkum spám, en síðan þá hefur mig langað að prófa þetta sport þar sem margir segja að það gefi manni svo mikið meira heldur en hugsanlega fallegar línur.

Aldrei tókst mér að drífa inn í einsog eitt yogastudíó heima á Íslandi á meðan ég var þar, en það gerði ég hinsvegar hér í Kaupmannahöfn.  Ég skellti mér á eitt byrjendanámskeið í Ashtanga yoga hjá íslenskri stelpu hérna úti og hún náði að smita mig undir eins. Fyrst fannst mér þetta rosalega skondið, sitja og óma, hugleiða og teygja mig í allar áttir (og aldrei hef ég verið talin liðug). Hinsvegar kemur það mér alltaf meira á óvart hversu mikið maður í raun getur og líka hversu misjafnt dagsformið er. Aldrei hafði mér  heldur dottið í hug hversu mikið maður svitnar við þessar æfingar.  

Semsagt yogatímar eru komnir inn í vikulega dagskrá hjá mér og fer ég minnst tvisvar í viku. Ég gerðist líka svo kræf og er búin að fjáresta í korti út árið þannig að það er bara að duga eða drepast.

Þið sem eruð hér í Köben ættu að líta hingað inn ...

Shanti





» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2009 20:09:03 / edg

Kúltur blanda ...


Edisonsvej ber keim af kommúnu. Við sem búum hérna saman erum ágætur kokteill og maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi (hversu nytsamlegt sem það nú er).  Ásamt mér, íslendingnum, búa hér þjóðverji og noregsmaður – sem upprunulega kemur frá Pakistan. Um mánaðarmótin mun svo heimamaður flytja inn og þá er kommúnan fullbúin.

Þjóðverjinn er ansi skipulagður og toppar hann mig illilega þar (þrátt fyrir að ég sé meyja). Gæinn veit að hlutirnir gerast ekki að sjálfu sér og vill hann því drífa allt áfram (gott að vissu leyti en verður samt sem áður að vera innan skynsamlegra marka). Hann hefur gaman að því að elda og gerir það lista vel. Drengurinn er líka þrifalegur og gerðist svo djarfur um daginn að setja saman þrif-áætlun og voila, það er semsagt komið prógram út árið, það er hver gerir hvað, hvenær og hvernig. Held að engir gerir þetta nema þjóðverjar ...

Noregsmaðurinn er hinsvegar á allt annarri hillu og þarf að læra allt frá *scratch*. Drengurinn er múslimi og er þar af leiðandi búinn að vera fastandi síðasta mánuðinn. Hinsvegar er Ramadan búin og verður henni víst formlega lokið í kvöld með tilheyrandi festivali. Það hefur verið ansi áhugavert að búa með fastandi manni og já, bara múslima yfir höfuð. Hann er nú ansi líkur okkur hinum að mestu leiti nema að hann forðast svínakjöt einsog heitan eldinn (og þar af leiðandi þurfum við hin að muna eftir því einnig), lifir það af að borða ekkert á milli dögunar og sólseturs í marga daga (óskiljanlegt) og snertir ekki áfengi:$.

....get trúað að maður eigi eftir að vera reynslunni ríkari og margs vís áður og þegar þessari sambúð líkur – sniðugt.

http://shipsbecks.files.wordpress.com/2008/01/cross-cultural-marketing.jpg


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.09.2009 22:10:22 / edg

Leikhús på dansk ...


Allt síðasta ár bjó ég við hliðina Det Nyt Teater í miðborg Kaupmannahafnar. Ég varð samt aldrei það fræg að komast á sýningu þar – svosum ekki öll von úti enn. Annars er ég flutt á nýjan stað í dag, nær skólanum en tiltölulega miðsvæðis og enn er leikhús í næsta húsi – núna Edison Teater.

Áður en við fluttum inn fengum við þær upplýsingar að leikhúsið ætti það til að bjóða nágrönnunum á sýningar endrum og eins. Ég var ekki alveg að kaupa það strax en það leið ekki langar tími þangað til fyrsta nágrannaboðskortið var sent út og var það notað í gærkvöldi þar sem við skunduðum út í næsta hús til að sjá Nick Cave TeaterKoncert.  Mjög spes sýning en tónlistin var stórkostleg og leikararnir ekki síðri. Verð að viðurkenna að ég átti samt smá erfitt með að ná söguþræðinum þar sem  hann var frekar steiktur + allur texti var sunginn frá a-ö og fór auðvitað fram á dönsku....

Gott framtak og ég komin með plús í menningarkladdann:haha:.

                                                       *****************

http://images51.fotki.com/v1584/photos/3/352721/2451976/NICKCAVE_EDISSON006_ashx-vi.jpg



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2009 20:18:58 / edg

Heija Svergie ...


Ég er staðsett á Skáni þessa helgina í sumarhúsinu í Annedal. Yndislegur staður og hér getur maður komið til að slappa af og njóta sænsku sveitarinnar:haha:. Á tímabili var ég ekki alveg að skilja af hverju foreldrar mínir + vinir fjárfestu í sumarhúsi í Suður-Svíþjóð – það var ekki alveg í takt við því sem maður hafði orðið var við þar sem fjárfestingar á Spáni hafa átt huga og hjörtu Íslendinga síðustu ár (að minnsta kosti fyrir mér hefur það verið þannig).  Hinsvegar í dag er ég svo fegin að geta kíkt yfir lækinn þegar tækifæri gefst til og fólk er í húsinu – enda tekur það ekki nema rúman klukkutíma að smella sér yfir með Øresundstoget:haha:.

Annedal er vinalegur staður, húsið er kósý og notalegt, garðurinn (ef garð má kalla – frekar landsvæðið) er enn grænn og gróinn og tjörnin í garðinum er stútfull af vatnakörfum – sem ég kýs að kalla gullfiska því þannig líta þeir út. Í gær fann ég svo vatnakrabba  og í síðustu ferð uppgötvaði ég litla krúttulega froska sem hjúfra um sig í kringum tjörnina. Spurning hvað maður finnur næst... 
Uppskeran úr garðinum samanstendur svo úr eplum, plómum og perum og hefur nýkreistur safi verið á borðum hér síðustu daga og núna síðast var sett í eplaköku a la Annedal. Sweet:haha: ...

Semsagt suðrið í Svíþjóð  hefur upp á margt að bjóða og til að setja punktinn yfir i-ið þá eru hvítu strandirnar hérna ekki af verri endanum ...

...Spánn what

http://images53.fotki.com/v1574/photos/3/352721/2451976/LALA117-vi.jpg


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.09.2009 22:06:27 / edg

Back on track ...


Mér finnst leiðinlegt að fara í IKEA – sérstaklega þegar hlutirnir sem mig langar til að kaupa eru ekki til og ekki heldur væntanlegir fyrr en eftir 2-3 vikur:$. Mjög hressandi niðurstaða þegar maður þarf að taka strætó í rúman hálftíma á áfangastað – þeir áttu þó til lök sem ekki voru til staðar sl. föstudag ...

Annars var heimferðin ekki svo slæm þar sem ég sat í makindum mínum í 150S. Á einni stoppistöðinni skunduðu tveir myndarlegir danir, sumarlega klæddir, einn með gítar og hinn með selló og byrjuðu að syngja skemmtileg dönsk lög:haha:. Frekar hressir gæjar sem brostu sínu blíðasta og rödduðu einsog enginn væri morgundagurinn – og þar með varð maður að brosa líka og IKEA-fýlan gleymdist:haha:. Mér finnst þetta frekar sniðug markaðsherferð hjá Movia – eða strætó hér í Köben. Léttir heldur betur til andrúmsloftið þar sem allir sitja og þegja saman, starandi út um gluggann með Ipod í eyrunum og eiga ekki von á svona uppákomum.  
Á meðan drengirnir sungu voru svo aðrir, íklæddir í skærgula jakka með græn bindi, að dreifa auglýsingum og sælgæti til farþeganna. Slagorðið var „ Jeg bus“ og ég held að öllum hafi þótt gaman í strætó á þessari stundu – jafnvel verið bus ...

http://imagecache5.art.com/p/LRG/26/2699/2JRUD00Z/stan-wayman-african-american-citizens-sitting-in-the-rear-of-the-bus-in-compliance-with-florida-segregation-law.jpg


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2009 22:22:41 / edg

Biking like the wind...


...já loksins er ég búin að færast einu skrefinu nær í að aðlagast dönskum kúltur og er komin á hjól:haha:. Reyndar er ég á tímabundnum fák einsog er, en um miðjan mánuðinn fæ ég minn eiginn – fagurgrænan fák með körfu og alles. Auðvitað sé ég eftir því núna að hafa ekki drifið í þessu fyrr, en þar sem ég bar alltaf von í hjarta um að það myndi rætast úr gengismálum Íslendinga þá lét ég það bíða að fjárfesta í hjóli og alveg þangað til það var orðið um seinan og verðin komin upp úr öllu valdi (auðvitað reiknuð í íslenskum krónum)...

Það er langt síðan ég skrifaði síðast og má ef til vill kenna tímaleysi um það:$. Tíminn líður hratt og núna finnst mér ár og öld síðan ég var í Kína. Síðustu vikur eru búnar að innihalda skemmtilega hluti einsog til dæmis heimsóknir, tónleika með Emiliönu Torrini og svo Eagles, partýstand, Svíþjóðarferðir + sól og sumaryl, hygge, Eurovision og svo mætti lengi telja. Síður skemmtilegir hlutir einkenndu einnig fyrstu vikurnar í maí og þá erum við að tala um verkefni og próf – en nóg um það.

Sumrinu verður líklegast að mestu eytt hér í Köben og verður gaman að prófa það. Maður verður svo að njóta Gl. Kongevej þar sem þessi íbúð verður kvödd í lok sumars – er byrjuð að leita að nýju heimili og það virðist margt vera í boði. Planið er svo líklegast að taka sumarkúrs í júlí til að létta á haustönninni og vonandi finna einhverja *easy* vinnu til að fylla upp í dagana og ef til vill rétta bankareikninginn aðeins við.

Ég á von á fólkinu mínu í júlí, er með heimboð til Lissabon á borðinu og klakaferð er líka á óskalistanum...

Btw búin að setja gott sumar-mix inn á myndasíðuna hér til hliðar:haha:.





» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2009 21:27:57 / edg

Kína #2


Seint kemur seinnihluti en kemur þó, vesen að hafa ekki skrifað hann inn áður þar sem allt er ekki jafn ferskt í minninu einsog fyrir 2 vikum:$...

***

Auglýsing á strætó sýndi að H&M væri komið til Beijing. Ég sem hélt að þeir væru nú þegar þar í borg en þegar ég athugaði málið betur þá var það ekki H&M, heldur H&W og H&N (með sömu rauðu stöfunum). Tilviljun:$? Sá líka Pizza Hut sem leit út líkt og allir aðrir Pizza Hut staðir – hinsvegar sá ég líka sama rauða hattinn og nafnið Big Pizza undir honum. Það glitti líka í LaCoste krókódílinn – auðvitað undir öðru nafni ... Kínverjar eru meistarar í eftirlíkingum og ég stórefast um að The China IPR Helpdesk verði verkefnalaust í nánustu framtíð ...

***

Við gengum Kínamúrinn í snjókomu,  skoðuðum The Summer Palace í sólskini og þegar ég heimsótti Torg Hins Himneska Friðar og Forbidden City þá var birtan rosaleg. Ljósadýrðin í Ólympíuþorpinu var svakaleg og áreitið í The Silk Market var þreytandi. Ef þú vilt prútta, þá ferðu þangað ...

***

Ég tók vaxtakipp í ferðinni, þá er ég ekki að tala um uppávið heldur til hliðar. Svona fer Kína með mann þar sem allur maturinn er vel *greasy* og djúpsteiktur8|. Ég er svosum ekki þekkt fyrir að borða mikið en ef til vill hafa allir litlu bitarnir sem ég var að reyna að veiða upp með þessum blessuðum prikum orðið að einum stórum. Ég sem hélt að ég myndi frekar grennast í þessari ferð – heldur betur ekki hmmm....

***

Ég hætti mér í klippingu í Kína þar sem þjónustan var 100% á *nowhereland* tungumáli – þar fær maður nudd í kaupæti og það eru minnst þrjár manneskjur að þjónusta þig:haha:. Ég kíkti líka til klæðskera og lét sauma á mig dragt fyrir 500 Yuan (ca. 400 DKK) sem tók 2 daga, fór í gegnum Bund Sightseeing Tunnel í átt að Cloud9 Bar sem er staðsettur á 87. hæð – þar var drukkinn Mohijto á sama tíma og dáðst var af útsýninu yfir Shanghai-borg:haha:. Ég fékk í eyrun þegar Beijing Operan var sótt heim, varð orðlaus og yfir mig hrifin á Shanghai Acrobatic Show, söng karaoke í 4 klukkutíma í Party World síðasta kvöldið og tók svo hröðustu lest heims upp á flugvöll daginn eftir:haha:.

***

Mér fannst Beijing vera flott – en Shanghai vera æði:haha:. Nú er allt á fullu við að byggja borgina upp fyrir EXPO 2010 og er unnið hörðum höndum 24/7 – ekki það besta fyrir andrúmsloftið en borgin á örugglega eftir að verða svakalega (að köflum) á næsta ári...

***

Hvað getur maður sagt - þessi ferð var frábær ...





» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 13:43:53 / edg

Kína #1


Tíminn líður hratt sama hvar maður er, hann gerði það líka í Kína og þessar tvær vikur gjörsamlega flugu áfram. Það er af mörgu að taka og í raun ómögulegt að koma því öllu fyrir í einum texta – hér koma því fyrstu punktarnir: 

***

Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því áður hvað Kína er hrikalega stórt land og mannmergðin alveg eftir því (kannski ekki í cm en í fjölda). Það hefur verið mjög grunnhyggið af manni að halda að Kínverjar eru allir eins í útliti (eða öllu heldur mjög líkir) en í raun eru alveg jafn margar týpur, ef ekki fleiri, af fólki þarna einsog hér í Evrópu – kannski slæmt að viðurkenna, en það er samt eitt af því sem kom mér hvað mest á óvart8|.  
Þeir eru alveg óútreiknanlegir og fékk ég mitt fyrsta menningarsjokk þegar ég skrapp í súpermarkaðinn Wu Mart (já nei ekki Wall Mart). Fyrir utan það að búðin var á þremur hæðum þá var hún troðfull af örugglega milljón kínverjum sem voru á háa C-inu og kölluðu hver ofan í annan til þess að selja sína vöru. Það myndi sko ekki taka þá langan tíma að selja ömmu sína:$...
Sannkallað ævintýri að fara inn í þessa markaði þar sem allt fæst og valkvíðinn fer í hámark – þeir meira að segja bjóða upp á lifandi dýr:$. Var samt alveg búin á því eftir ca 20 mínútur þarna inni ....

***

Chopsticks. Hef aldrei náð að höndla þessi *prik* almennilega þegar ég hef verið að borða sushi. Þarna var nánast ekkert annað í boði og því varð maður bara að taka á honum stóra sínum sem byrjaði í flugvélinni á leiðinni til Beijing. Ég sat við hliðina á heimamanni sem þótti greinilega gaman að kenna stelpunni sitt hvað nýtt. Hann varð ekki alls kostar sáttur þegar ég tók upp hnífapörin þegar ég fékk matinn minn og með sinni líkamstjáningu benti hann mér á chopstick-in og þar með lagði ég hnífapörin til hliðar og fékk einkakennslu í chopsticks meðhöndlun. Kannski var þetta einum of, en hann fylgdist semsagt grannt með framförum mínum þangað til að ég kláraði matinn og það þýddi ekki að gefast upp ....

***

....sem leiðir mig að öðru. Ég hef aldrei verið jafn mállaus í einu landi og það kom mér rosalega á óvart hversu litla ensku hinn almenni kínverji talar. Líkamstjáning er og var því í hávegum höfð. Maður kemst ekki langt, hvorki í BeijingShanghai, án þess að hafa heimilisfangið skrifað niður og það á kínversku. Annars ertu lost ...

***

Kínverjar eru mjög sveigjanlegir. Til að mynda fór ég á matsölustað í Shanghai þar sem það vildi svo skemmtilega til að allir starfsmennirnir báru auðsegjanleg nöfn með amerískum keim. Þarna voru samankomin meðal annars Harry, Sally og Leslie. Þegar Brain mætti svo til starfa fannst mér þetta vera orðið svona frekar dúbíus ... Sannleikurinn er víst sá að ef til vill og mjög líklega voru þetta ekki skírnarnöfn fólksins. Ein eða tvær stafsetningarvillur skiptu líka ekki höfuðmáli - að minnsta kosti þjónaði Brain þarna einsog enginn væri morgundagurinn hmm...

***

Myndir segja meira en mörg orð. Er því búin að setja inn tvö stór albúm á myndasíðuna – eitt frá Beijing og annað frá Shanghai. Passwordið er það sama og vanalega ...

Xie xie




» 9 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 10:28:12 / edg

Sól sól skín á mig ...


...búið að vera ansi milt veður hér síðustu daga,skínandi sól og hitatölurnar að færast upp fyrir núllið:haha:. Síðastliðinn miðvikudag gat ég setið uppi á þaki og lesið. Reyndar komu smá vindhviður af og til sem létu mann fá smá gæsahúð , en vá hvað þetta verður næs þegar vorið verður komið í allri sinni dýrð, þá verð ég bara uppi á þaki...

***

Fór til Stokkhólms fyrir viku og átti frábæra helgi:haha:. Þetta var mín fyrsta ferð þangað  og vonandi ekki sú síðasta. Oftar en ekki hef ég heyrt að um væri að ræða fallegustu borg Norðurlandanna - mér finnst hún æði  en ég get ímyndað mér að hún sé enn fegurri á sumrin = verð að fara þangað aftur:!:. Við stöllur gerðum margt skemmtilegt, skoðum Gamla Stan, borðuðum góðan mat, tókum göngutúr um miðbæ Stokkhólms, spiluðum, horfðum á Melodifestivalen, sungum í SingStar og svo var gott bíómyndamaraþon tekið á sunnudeginum undir teppi:). Ójá, við Sibba vorum í góðu yfirlæti hjá Guðrúnu og fjölskyldu:!:. Alltaf ljúft að hitta vinkonur sínar ...  
Komst að því að ef einhverjir eru meira *húkt* á Eurovision (eða Melodifestivalen) heldur en Íslendingar þá eru það klárlega Svíar8|. Mér skylst að undankeppnin taki nokkrar vikur og svo var eimmitt úrslitakvöldið um síðustu helgi. Lagið sem vann var spes og önnur lög sem fengu dágóðan slatta af stigum voru enn meira spes:$...

***

Nýr íbúi á Gl.Kongevej leit svo dagsins ljós 12.03.09, hann Atli Ísfeld Askov. Þrælflottur strákur sem verður pottþétt heartbreaker í framtíðinni;). Algjört yndi.....

***

Kína eftir 5 daga8|. Tíminn líður fáranlega hratt og áður en ég veit af verður þessi önn búin. Nóg að gera næstu daga og ég sem hélt að ég væri yfirleitt mjög skipulögð er það ekki as we speak:$ ...
Btw blés lífi í myndasíðuna mína um daginn og nokkur ný albúm litu dagsins ljós....



» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 18:44:24 / edg

Smá pása ...


Sit hérna umkringd fullt af flottum bókahillum, í voða stórum sal– hrikalega næs:!:. Erindagjarðirnar kannski ekki alveg eins næs þar sem ég er hér í próflestri og það er föstudagskvöld:$. Lokar klukkan níu stundvíslega - Danirnir eru ekki að drepa sig í opnunartímum hér frekar en annarsstaðar (og já, ég er stödd í Demantinum).

Ég er búin að gera mér vonir um að vorið sé á næsta leyti hérna og stundum finnst mér ég svo nálægt því að fá þá ósk uppfyllta en þá taka skítkaldir dagar við – einn af þeim er í dag (og svo var annar í gær...æ síðasti vordagur hjá mér var fyrir viku8|). Veit eiginlega ekki hvað ég er að kalla yfir mig, því jú það er dauði og djöfull að þurfa að mæta í skóla, og/eða þurfa að húka inni yfir skólabókum þegar sólin skín úti. Er komin í kross....

Annars er ég að fara jómfrúarferð mína til Stokkhólms á næstu helgi:haha:. Hlakka mjög mikið til þar sem ég er að fara hitta Guðrúnu vinkonu og fjölskylduna hennar + að hún Sibba mín ætlar að vera þar í borg á sama tíma. Einsog Guðrún sagði þá verður þetta voða kósý, ætlum að drekka gott vín og borða góðan mat – vitið ekki hvað þessi hugsun er ljúf á þessari stundu....

Held svo að það fari að fjölga á Gl.Kongevej hvað úr hverju, en hún Klara er orðin svo framstæð að maður spyr sig hvernig hún getur einfaldlega haldið jafnvægi. Það eru kostir við það að búa með svona *bomm* konu, til dæmis hefur hún haft óstjórnlega löngun í súkkulaðiköku á öllum tímum. Ef sú rétta er ekki til í búðinni þá hefur bara verið skellt í eina á núll og einni og við hin njótum góðs af. Annað skemmtilegt sem maður hefur notið góðs af upp á síðkastið er óþolinmæðin í honum Allani. Eftir að poolborðið góða var tekið þá sárvantaði eitthvað *leikfang* í íbúðina sem endaði svo með Wii tölvu og nýjum flatskjá:haha:.

Í lokin þá eru gömlu mín farin til London að horfa og hlusta á Tinu Törner og ég sit hér á bókasafni ... svindl.





» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2009 22:23:51 / edg

Upphandleggurinn aumur...


...þar sem ég fékk sprautu í dag. Hata sprautur, en það sem maður leggur ekki á sig fyrir smá ferðalag:$. Styttist óðum í Kína og því var við hæfi að klára þessar stífkrampa/barnaveiki/lifrabólguA sprautur af sem fyrst og voila, bara afgreitt á núll og einni + ég ennþá sprelllifandi:haha:.

Ég er búin að sjá það að ég er haldin nokkurskonar valkvíða – og þá meina ég bara yfir höfuð. Getur tekið mig alveg óratíma að velja á milli og/eða taka litlar ákvarðanir (úff hvernig verður það þegar þær verða stærri:$). Átti í svona erfiðleikum í kvöld. Til að gera langa sögu stutta, þá vinnur meðleigjandinn minn hjá voðalega skemmtilegu fyrirtæki og á kauði það til að fá boðsmiða hingað og þangað. Hann var semsagt með boðsmiða á pre-premier í Nørrebro Teater á stykki sem heitir 2200 Carmen (sjá hér). Til að gera söguna enn styttri þá var það smávegis heimanám fyrir morgundaginn sem var að gera mér lífið leitt, hinsvegar hef ég verið mjög ómenningarleg hér í borg og langaði að bæta úr því – og eftir nokkur msn samtöl, símtöl og vangaveltur ákvað ég að slá til.  
Jómfrúarferðin mín í danskt leikhús var vel þess virði, sagan, leikararnir, dansararnir, sviðsmyndin og svo mætti lengi telja var allt saman alveg frábært:!:. Ekki skemmdi það svo fyrir að þessi gaur hér sá um að syngja fyrir mig allan tímann;).

Annars er bara allt við það sama hér, nóg að gera, át yfir mig á síðustu helgi og fékk magapínu í kjölfarið og jú, svo hafa strætóbílstjórar verið að verkfallast núna í vikunni sem er að líða. Asnalegt að sjá ekki strætóa á götunum hérna....


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2009 13:12:36 / edg

Kveðja frá the Black Diamond ...


Sit hérna á Det Kongelige Bibliotek og reyni að vinna mér í haginn. Voðalega notalegt að vera hér, rosa gamaldags, fullt af plássi, bókum, internettenginu og innstungum (sem klárlega mætti gera bætur á í CBS).

Það er vetur í Kaupmannahöfn. Ég hélt hreinlega að það ætlaði aldrei að hætta að snjóa hér í gær og í fyrradag – kuldinn er líka eftir því. Reyndar virðist þetta ekki vera neitt sem að festist þannig, en samt er svona hvít skikkja yfir öllu, Søene gjörsamlega frosin + nóg af slabbi (sem mér finnst alveg einstaklega leiðinlegt). Ég get hreinlega ekki beðið eftir vorinu......

Annars er sveitaball hér í kvöld uppi á Amager. Á Móti Sól er víst mætt á svæðið og ætlar að slá á létta strengi sem og einhverjir voða færir DJ‘ar. Var á mörkunum að nenna en sló svo til – hef aldrei farið á svona Íslendingahitting hér í borg þannig að það er um að gera að prófa. Restin af helginni er svo planlögð út í eitt. Svíþjóð á morgun þar sem fröken Andrea Elín heldur upp á 2 ára afmælið sitt. Það er svo spurning um að framlengja þar fram á sunnudag og kíkja á sænskt skemmtanalíf, eða drífa sig heim, smella sér í búning og fara í Fastelavn partý til Bornholmsdrengjanna. Á sunnudaginn er svo bolludagskaffi hjá skvísunum á RBG........

.....og já ég semsagt er að vinna mér í haginn hér í demantnum þar sem ég efast um að ég hafi tíma til að lesa fyrir þriðjudagstímann um helgina – off I go....





» 5 hafa sagt sína skoðun

10.02.2009 21:28:46 / edg

Ég var einu sinni A manneskja ...


....en er gjörsamlega B í dag8|. Vildi oft óska þess að geta bara tekið daginn snemma, það er þegar ég þarf ekki að mæta í skólann, vakna upp úr 8 á morgnana og lesa til kannski svona 16 á daginn. Eiga svo kvöldin frí án þess að vera með samviskubit. Það versta er að einbeitningin mín er svo miklu betri á kvöldin – og þá einna helst eftir klukkan 22 .....  + að ég get einfaldlega ekki komið mér í rúmið fyrir miðnætti ... bömmer:$.

Það gengur illa að halda þessari síðu lifandi – hinsvegar virðast flest allir aðrir vera í blogg-verkfalli einsog er og margar síðurnar ekki enn komnar í gang eftir jólafrí. Sjálfri finnst mér þetta miður (og þá meina ég hvað ég sjálf er löt) því að það er gaman, eftir öll þessi skrif um allt og ekkert, að geta átt nokkurskonar dagbók. Hinsvegar er ég að falla í þá djúpu gryfju (og á sama tíma skjóta mig ærlega í fótinn) því að jú þetta er orðið nokkurnveginn þess lags síða = dagbókarskrif (það sem ég hef verið að úthúða hérna oft áður:$). Ef til vill er það eitthvað skiljanlegra þar sem maður býr víst erlendis en ekki á klakanum einsog er.

Hef stundum verið að velta fyrir mér teljaranum hérna á þessari síðu. Yfirleitt dettur hann í vel yfir 100, jafnvel 200, en hinsvegar stendur alltaf kommentað kerfið mitt gjörsamlega autt og ónotað eftir hverja og eina færslu (og þá meina ég miðað við fjöldan sem virðist kíkir hingað inn). Kannski er teljarinn hérna eitthvað brenglaður – en ef ekki, you got the hint:!:. Bara gaman að fá eitt krúttulegt hæ ...

Annars er bara skítakuldi hérna Köben og svona var útsýnið úr stofuglugganum um daginn ....





» 6 hafa sagt sína skoðun

24.01.2009 13:00:29 / edg

Gleðilegt ár :)


Hvíldartíminn útrunninn og tími kominn á að blása smá lífi í þessa síðu:haha:.

Nýtt ár og nýjir tímar framundan - allt sama stútfullt af nýjum tækifærum sem og upplifunum:haha:. Einhverra hluta vegna hef ég það á tilfinningunni að margt gott eigi eftir að gerast á þessu ári og spennandi hlutir eiga eftir að eiga sér stað – btw núna er það jákvæða hliðin í mér sem er með yfirhöndina - gott mál;).

Köben tók á móti mér með sól í heiði og rosalega fallegu veðri. Ég var mjög fegin þar sem mér finnst síðasti dagurinn á Íslandi fyrir brottför alltaf svo leiðinlegur. Undantekningalaust hef ég alltaf þurft að snúast allan daginn og redda hinum og þessum hlutum á síðustu stundu (óskipulögð??:$). Það svo að smella bless-kossi á liðið með þá hugsun í huga að maður viti hreinlega ekkert hvenær maður sér fólkið næst er líka ömurlegt.
Hinsvegar þar sem Pollýanna virðist vera í tísku heima á klakanum, ákvað ég bara skutlast með hana hingað yfir til Danaveldis í leiðinni – tók hana með mér út að hlaupa og sá lífið í allt öðru ljós haha:!:

Margt skemmtilegt er á döfinni og þó nokkrar ákvarðanir sem ég verð að taka. Það sem stendur hæst þó er að ég er loksins á leiðinni til Kína og mun sú ferð eiga sér stað í lok mars og fram í apríl. Bæði Beijing og Shanghai verða sóttar heim, fyrirtæki heimsótt og kúlturast út í eitt.  Mér hefur einnig boðist að fara í skiptinám næstkomandi haust til Hollands – þarf aðeins að melta það en hinsvegar kitlar það ofboðslega að færa sig í smá tíma niður í Central-Europe ....

Kemur allt saman í ljós - býst fastlega við að lífið leiðir mann þangað sem maður á að fara....





» 6 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 23:50:06 / edg

Julehygge ...


Er alveg í því að reyna að finna mér eitthvað að dunda við þangað til að ég fer heim á klakann:$. Hlakka eitthvað voðalega mikið til að koma heim og hitta alla enda er þetta ár búið að vera heilmikill rússíbani fyrir flesta ef ekki alla.

En semsagt þessi tímaeyðsla mín hefur gengið vonum framar en hún hefur meðal annars innihaldið Julefrokost með bekknum, kærkominn laugardagsbrunch daginn eftir herlegheitin, viðkomu á nýjum kósý kaffihúsum,  æbleskiver, glögg og matarboð með dönskum vinum, jólamarkaðsheimsókn í Christianiu og núna síðast ferð yfir lækinn til Malmö þar sem ég átti kósý stund með sænskum vini:haha:.

Reyndar hef ég svo líka upplifað jarðskjálfta hér í Danmörku en við hann vaknaði ég í gærmorgun. Var ekki alveg viss hvað ég átti að gera við sjálfa mig á þeim tímapunkti en ákvað svo að snúa mér á hina hliðina þegar allt vera fallið í ljúfa löð. Skondið að hafa upplifað að minnsta kosti þrjá jarðskjálfta hingað til....

Annars skellti ég mér líka á sýninguna Bodies í Tívolí-inu um síðustu helgi (mæli með að þið smellið á linkinn). Mögnuð sýning þar sem maður sér svart á hvítu what lies beneath ones skin svo ég sletti smávegis = bein, vöðvar, sinar og svo mætti lengi telja. Við erum að tala um að maginn á okkur er svo lítill að maður til dæmis getur ekki ímyndað sér að innihald tveggja bjórdósa myndi rúmast þar inni, stærðarmunur á heilbrigðu líffæri vs. sýktu er gífurlegur (og ótrúlegt hvernig líkaminn virðist búa til pláss þegar slíkt á sér stað) og einnig er fremur skondið að sjá hvernig það allra heilagasta hjá karlpeningnum lítur út án allrar yfirhalningar:$. Klárlega aldrei of seint að læra og/eða uppgötva eitthvað nýtt ....

Opið hús hér á Gamle Kongevej annaðkvöld sem á eftir að innihalda æbleskiver, jólaglögg og jólatónlist - svo er það bara spurning hvert kvöldið leiðir mann – ég er að minnsta kosti ekki á leiðinni heim fyrr en eftir þrjá daga ...





» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 33
Heimsóknir
Í dag:  89  Alls: 231849
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan